Setberg
Þegar berg hefur veðrast og molnað í sundur taka roföflin við og bera það til lægri staða þar til þau enda í hafinu, í stöðuvötnum eða í lægðum. Þar sest bergmylsnan fyrir sem leir, sandur og möl. Með tímanum þjappast bergmylsnan saman og myndar fast berg sem nefnist setberg. Dæmi um setberg er þegar leirinn verður að leirsteini og sandurinn verður að sandsteini. Fleiri tegundir eru til af setbergi eins og kalksteinn sem verður m.a. til úr skeljum dýra sem lifðu í sjó.